Annaðhvort að fjarlægja þessa hraðahindrun eða í það minnsta á lagfæra hana þannig að hún sé ekki hálfófær. Það skiptir máli hvort komið er úr beygjunni frá Álfabakkanum eða hvort haldið er beint áfram Arnarbakkann.
Við þessa beygju er hraðahindrun og þegar farið er yfir hana veltur bílinn til og frá svona ca 5 sinnum sem fer mjög illa með bílinn. Þarna er ekki gangbraut og því alveg ástæðulaust að vera með þessa hraðahindrun.
Þessi hraðahindrun getur ekki farið vel með bíla sem koma akandi upp álfabakkann og beygja til hægri, til dæmis þeir sem búa við Blöndubakka starfa í Breiðholtsskóla eða Bakkaborg eða þeir sem keyra börn sín þangað daglega. Algjörlega sammála með staðsettninguna, hún er út í hött.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation