Óskað er eftir útitafli og útiborðtennisborði til að efla enn frekar félagsauð í hverfinu. Svæðið á bak við Jafnasel er vel nýtt á veturna og hjólabrettaramparnir eru vel nýttir á sumrin. Gaman væri að hafa fjölbreytta möguleika á þessu svæði fyrir breiðari hóp og auðga hverfið með uppbyggilegum svæðum fyrir íbúa.
Fallegra og hagnýtara útisvæði.
Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Fràbær hugmynd en ekki nógu góð staðsetning. Vegna þess að sleða og skíðafólk er mikið þarna a veturn og slík borð gætu valdið slysahættu. En frábær hugmynd t.d a svæðið hinum megin við götuna hjá fótboltavellinum
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation